Lilja hyggst ræða „hugmyndir sem ekki má ræða“ hjá Hreyfingunni og Framsókn

Lilja hyggst ræða hugmyndir sem eigi megi ræða á fundum með Hreyfingunni og Framsókn
Þingmaðurinn Lilja Mósesdóttir gerir víðreist nú um stundir ef marka má dagskrá hennar næstu dagana. Hyggst hún ræða hugmyndir sínar um nýja íslenska krónu á opnum fundi Hreyfingarinnar í kvöld og sest niður í kaffispjall með framsóknarmönnum á laugardaginn kemur.
Hvetur Lilja alla sem vettlingi geta valdið að mæta á fund sinn um nýja krónu á fésbókarsíðu sinni samkvæmt fregn Smugunnar. Þar segist hún ætla að ræða hugmyndir sem ekki megi ræða.
Gera má ráð fyrir að krónumálin verði einnig til umfjöllunar þegar Lilja fær sér sæti meðal framsóknarmanna á laugardaginn kemur en samkvæmt upplýsingum á heimasíðu þess flokks mun Atli Gíslason einnig mæta á þann fund.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is