Minni hluti þings samþykkir að skipa stjórnlagaráð
Alþingi samþykkti rétt í þessu með 30 atkvæðum gegn 21 að skipa stjórnlagaráð sem gera á tillögu um nýja stjórnarskrá. Stjórnlagaþing munu skipa þeir 25 einstaklingar sem kjörnir voru á stjórnlagaþing í haust og fengu skipunarbréf áður en hæstiréttur úrskurðaði kosninguna ógilda.
Þó er ekki víst að allir, sem kjöri náðu í haust, vilji taka sæti í stjórnlagaráði. Þá verður þeim, sem næstir voru því að ná kjöri, boðið að taka sæti þar.
Sjálfstæðismenn greiddu allir atkvæði gegn málinu og þingmenn Hreyfingarinnar allir með, en aðrir flokkar skiptust í afstöðu sinni.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sátu hjá, svo og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Helgi Hjörvar, Kristján L. Möller og Skúli Helgason úr Samfylkingu. Sama gilti um Lilju Mósesdóttur.
Úr Framsóknarflokki studdu málið Guðmundur Steingrímsson, Höskuldur Þórhallsson og Siv Friðleifsdóttir, Eygló Harðardóttir sat hjá, en aðrir voru á móti.
Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason, Kristján Þór Júlíusson, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Þuríður Bachman voru fjarverandi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
