Viðskipti Þriðjudagur 29.03.2011 - 08:20 - Ummæli ()

UPPFÆRT: Fyrirtöku í lánamáli Arion banka gegn Sigurði Einarssyni frestað

Arion banki og slitastjórn sækja mál gegn Sigurði vegna lána Kaupþings til stjórnarformannsins fyrrverandi.

Fyrirtöku í lánamáli Arion banka gegn Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, sem vera átti í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag hefur verið frestað. Hyggst Sigurður reyna sitt ítrasta til að ná samkomulagi utan dómstóla sem mun vera ástæða frestunarinnar.

Fyrra lánamálið snýst um lán til Sigurðar til kaupa á hlut í fjárfestingarsjóðnum Kaupþing Capital Partners II Fund, sem hélt utan um fjárfestingar bankans í óskráðum bréfum.

Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að The S Invest Trust, félag Sigurðar, hafi fengið tíu milljónir punda að láni til kaupa í sjóðnum. Það jafngildir rúmum 1,8 milljörðum króna á núvirði og er jafn há upphæð og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri bankans, fékk að láni.

Þegar Kaupþing féll í október 2008 hafði Sigurður Einarsson fengið 7,8 milljarða króna að láni hjá bankanum. Stærsti hluti þeirrar fjárhæðar var til kominn vegna lána til kaupa á hlutabréfum í bankanum sjálfum, en bankinn hafði lánað lykilstjórnendum alls 64 milljarða króna í þessu skyni. Stjórn Kaupþings aflétti persónulegri ábyrgð starfsmanna á lánunum 25. september 2008, aðeins nokkrum dögum áður en bankinn fór í þrot, en slitastjórn bankans rifti síðar ákvörðuninni en bauð þeim sem höfðu fengið lánin að endurgreiða stóran hluta þeirra eða semja um uppgjör.

Nokkrir fyrrverandi stjórnendur bankans sem hæst lán fengu neituðu að semja við slitastjórn um endurgreiðslu og fóru mál þeirra fyrir dómstóla. Slitastjórn Kaupþings krefst þess að Sigurður endurgreiði 579 milljónir króna af lánum sínum.

Stjórnarformaðurinn fyrrverandi krafðist frávísunar á málinu á þeirri forsendu að hann sé með lögheimili í Bretlandi. Í Fréttablaðinu í dag segir að úrskurður um hvort hægt verði að flytja málið hér verði felldur 7. apríl.

Þá kemur fram að fjögur sambærileg mál eru á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur og Héraðsdóms Reykjaness á næstu tveimur mánuðum, þar á meðal gegn Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is