Viðskipti Þriðjudagur 29.03.2011 - 11:10 - Ummæli ()

Menntamálaráðherra: Sameining leik- og grunn- skóla borgarinnar slæm latína

Veigamiklar breytingar á skólastarfi á skömmum tíma þykir ekki góð latína

Hugmyndir borgaryfirvalda í Reykjavík um sameiningu fjölmargra leik- og grunnskóla strax á næsta skólaári falla fleirum en foreldrum og kennurum illa í geð. Menntamálaráðuneytið varar við slíkum sameiningum á svo skömmum tíma sem fyrirhugað er.

Kemur þetta fram í umsögn menntamálaráðuneytisins vegna sameiningarhugmynda Reykjavíkurborgar en ráðgert er að sameina eina fimmtán skóla með einum eða öðrum hætti og er stefnt að því að það gangi strax í gegn fyrir næsta skólaár.

Er það skoðun menntamálaráðuneytisins að slíkum breytingum fylgi mikið umrót og þurfi að gera slíkt á mun lengri tíma en borgin tekur sér. Hafa verði hagsmuni barnanna að leiðarljósi.

RÚV greindi frá.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is