Birgitta: Lesperance skrökvaði til að fá fund með Ögmundi og Atla
David Lesperance, lögmaður tímenninganna sem sótt hafa um ríkisborgararétt á Íslandi, villti á sér heimildir í því skyni að fá fund með Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra og Atla Gíslasyni alþingismanni.
Þetta fullyrti Birgitta Jónsdóttir alþingismaður í Kastljósinu í gærkvöldi.
Birgitta sagði að þegar Lesperance nálgaðist hana fyrst, hafi hann sagst gera það að undirlagi Brewsters nokkurs Kahle. Kahle er bandarískur frumkvöðull í vef- og upplýsingamálum, og sagði Lesperance að þeir væru báðir mjög áfram um að löggjöf yrði að veruleika á Íslandi um upplýsinga- og tjáningarfrelsi, sem Birgitta hefur barist fyrir.
Með fylgdi að Kahle vildi leggja fram fé til stuðnings því máli og tengdum verkefnum.
Í kjölfarið lagði Lesperance hart að Birgittu að hún hefði milligöngu um fund hans með Ögmundi Jónassyni og Atla Gíslasyni til að ræða hugmyndina um ríkisborgararéttinn.
Þá kveðst hún hafa haft samband við Kahle og í ljós hafi komið, að hann hefði hvorki ætlað að leggja fram féð né ætti hann það til, og að hann hefði hvorki notið ráðgjafar né lögfræðiþjónustu frá Lesperance. Hann vildi ennfremur að nafn sitt væri hvergi tengt við umsóknirnar um ríkisborgararétt.
Af fundinum með Ögmundi og Atla varð ekki.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
