Viðskipti Þriðjudagur 05.04.2011 - 14:09 - Ummæli ()

Titringur hjá verslunareigendum vegna hugmynda um 200 þúsund króna lágmarkslaun

200 þúsund króna lágmarkslaun sögð auka launakostnað verslana landsins um 20 prósent

Mörgum verslunareigendum er brugðið yfir þeim áformum Samtaka atvinnulífsins að ganga að kröfum Alþýðusambands Íslands að 200 þúsund krónur verði lágmarkslaun í landinu í þrepum fram til ársins 2014.

Kjaraviðræður halda áfram en nokkuð hefur þokast milli deiluaðila ef frá er talið að hvorki SA né ASÍ eru sátt við útspil ríkisstjórnar Íslands. Vilja ASÍ menn fá skýrari svör um ýmis atvinnuverkefni meðan SA heldur fast við kröfu sína um að sjávarútvegsmálin liggi ljós fyrir áður en gengið verður frá nokkrum samningum.

Heimildir fréttastofu RÚV herma að verslunareigendur sé ósáttir við sitt fólk í SA fyrir að gefa til kynna vilja til að ganga að 200 þúsund króna lágmarkslaunum árið 2014 en um það gerir ASÍ kröfu. Er stór hluti starfsfólks í verslunum landsins á lágum launatöxtum og munu hugmyndir ASÍ stórhækka launakostnað verslananna. Er þar talað um allt að 20 prósenta aukinn kostnað.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is