Viðskipti Miðvikudagur 06.04.2011 - 21:30 - Ummæli ()

Fundur í New York ræður örlögum álvers í Helguvík

Fulltrúar Norðuráls og HS Orku sitja nú á fundum í New York.

Í dag hófst í New York fundur fulltrúa Norðuráls og HS Orku þar sem reynt verður að finna lausn á deilu fyrirtækjanna um orkuöflun til álvers í Helguvík.

Á fundinum eru einnig fulltrúar móðurfyrirtækjanna, Centuty Aluminium og Magma Energy.

Norðurál og HS Orka höfðu undirritað samning um afhendingu þess síðarnefnda á orku til álvers í Helguvík. Þegar nýir eigendur, Magma, tóku við HS Orku kom bakslag í þau áform og er deilan nú komin í gerðardóm í Svíþjóð, heimalandi Magma.

Sýnt þykir að ef ekki takast samningar á fundinum í New York séu áform um byggingu álvers í Helguvík fyrir bí og Norðurál muni krefjast skaðabóta vegna vanefnda HS Orku á orkusölusamningum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is