Meiri hagræðing hjá ríkinu fyrirsjáanleg á næsta ári

Oddný G. Harðardóttir er formaður fjárlaganefndar.
Búast má við að grípa þurfi til enn frekari hagræðingar og niðurskurðar í ríkisútgjöldum á næsta ári en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta er niðurstaða fjárlaganefndar sem fundaði í morgun um áhrif nýrrar þjóðhagsspár Hagstofunnar á forsendur fjárlaga.
Oddný G. Harðardóttir formaður fjárlaganefndar sagði í samtali við RÚV að ekki þyrfti að grípa til ráðstafana vegna yfirstandandi árs, þar væru breytingar innan skekkjumarka. Hins vegar væri útlitið dekkra árið 2012 en áður var talið. Á hinn bóginn væru horfur bjartari um hagþróun árin 2013 og 2014 en áður var reiknað með.
Þá væri enn óljóst hvaða áhrif kjarasamningar hefðu á þróun efnahagsmála.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is