Viðskipti Fimmtudagur 07.04.2011 - 21:46 - Ummæli ()

Árni Páll: Ársreikningar bankanna gefa ranga mynd af rekstri þeirra

Bankarnir þurfa að taka til í bókum sínum og fækka fólki, sagði efnahags- og viðskiptaráðherra.

Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra sagði í ræðu á afmælisfundi Seðlabankans í dag, að ársreikningar bankanna gæfu ranga mynd af rekstri þeirra og að störfum þar þyrfti að fækka verulega.

„Hvaða forsendur eru fyrir því að bankar reikni sér háar vaxtatekjur af endurmati á útlánasöfnum þar sem annað hvert lán er í vanskilum?“ spurði ráðherrann meðal annars.

Í ræðunni segir:

„Við þurfum að herða okkur í endurbótum á bankarekstrinum í landinu. Gengisfall krónunnar þurrkaði í einu vetfangi upp drýgstan hluta eigin fjár fyrirtækja, heimila, sveitarfélaga og veitufyrirtækja. Okkur verður að takast að hreinsa út hið ónýta og bankar og aðrir að viðurkenna tapaðar kröfur.

Meðan ársreikningar bankanna gefa óraunsanna mynd af rekstri þeirra og lánateppa ríkir, er hætta á lamandi stöðnun efnahagslífs Íslendinga. Hvaða forsendur eru fyrir því að bankar reikni sér háar vaxtatekjur af endurmati á útlánasöfnum þar sem annað hvert lán er í vanskilum?

Bankar þurfa að byggja á heilbrigðum rekstrarforsendum og störfum í fjármálakerfinu þarf að fækka verulega. Ef sú þróun tefst mun allt of stórt og dýrt bankakerfi sjúga afl og þrótt úr atvinnulífinu og frá heimilunum í landinu.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is