Skuldar yfir 150 milljarða en eignir undir 50 milljörðum
Kjalar, eignarhaldsfélag Ólafs Ólafssonar fjárfestis sem kenndur er við Samskip, skuldar rúmlega 151 milljarð króna, samkvæmt ársreikningi Kjalars, sem DV birtir í dag.
Kjalar var, á árunum fyrir hrunið, einn stærsti lántakandinn hjá Kaupþingi og eru 75 prósent skulda félagsins við Arion banka og um 15 prósent við Glitni. Tíu prósent skuldanna eru svo við dótturfélag Kjalars, Eglu.
Hluti af þessum skuldum Kjalars er til kominn vegna þess að á fyrri hluta árs 2008 yfirtók Kaupþing 400 milljóna evra fjármögnun bandaríska bankans Citibank á Kaupþingsbréfum Kjalars. Með þessu móti var áhættan af hlutabréfaeign Kjalars í Kaupþingi færð frá Citibank og yfir á Kaupþing.
Á móti þessum 151 milljarðs króna skuldum Kjalars eru eignir sem metnar eru á nærri 47 milljarða króna. Fjárfestingarverðbréf eru hluti af þessu eignasafni, meðal annars þriðjungshlutur í sjávarútvegsfyrirtækinu HB Granda sem metinn er á fimm milljarða króna samkvæmt ársreikningnum. Þar er einnig að finna rúmlega 73 prósenta hlut í Iceland Seafood sem metinn er á rúmar 1.800 milljónir króna.
Kjalar var meðal stærstu hluthafa Kaupþings fyrir hrun, í gegnum dótturfélag sitt, og átti um 10 prósenta hlut í bankanum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
