Viðskipti Sunnudagur 10.04.2011 - 00:40 - Ummæli ()

Bjarni Ben.: Þetta mál snýst ekki um mig eða Sjálfstæðisflokkinn. Kosningar strax

Bjarni Benediktsson vill kosningar strax.

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagðist í sjónvarpi í kvöld vilja „kosningar strax í þessu landi.“ Ríkisstjórnin væri jafnvel enn óvinsælli en Icesave-samkomulagið.

Flestir þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiddu samningnum atkvæði sitt á alþingi, en í kjölfarið reis upp hávær andstaða við málið innan flokksins.

Bjarni viðurkenndi að fyrir nokkrum vikum „sýndu mælingar að meiri hluti flokksmanna var á því að samþykkja samninginn“ og að hann væri „ekki ánægður með óeiningu um það innan míns flokks, sem ekki hefur verið auðvelt að bregðast við.“

Hann sagði einnig: „En þetta mál snýst ekki um Sjálfstæðisflokkinn og þetta mál snýst ekki um mig. Ég vil fá kosningar strax í þessu landi. Ríkisstjórnin hefur minni stuðning en Icesave-samkomulagið.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is