Steingrímur: Þurfum að skipta ansi oft um þing ef þessi forseti situr áfram
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði í sjónvarpsviðtali í kvöld að hér þyrfti að skipta oft um þing ef Ólafur Ragnar Grímsson forseti sæti áfram við völd.
Þetta voru viðbrögð hans við spurningu Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur, þegar hún innti hann eftir því hvort ekki væri rétt að kjósa til þings í ljósi þeirra ummæla forsetans að umboð alþingis hefði ekki verið endurnýjað á milli Icesave-samninga II og III og því væri rétt að vísa málinu til þjóðarinnar.
„Ég skildi þau ummæli reyndar ekki,“ sagði Steingrímur. „En við þyrftum líklega að fara að skipta ansi oft um þing ef þessi forseti situr áfram. Þá þarf kannski að kjósa á eins eða tveggja ára fresti.“
Hann bætti við að kosningar væru ekki rétt leið út úr stöðunni – ekki þyrfti að bæta pólitískri óvissu ofan á þá efnahagslegu óvissu sem upp væri komin.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
