Danske bank telur efnahag Íslands á batavegi. Forsendur fyrir styrkingu krónu góðar

Lars Christensen væntir þess að íslenskur efnahagur taki breytingum til hins betra á næstu árum
Forsendur eru fyrir allt að 25 prósenta styrkingu íslensku krónunnar að mati greiningardeildar Den Danske Bank en deildin sú metur stöðu Íslands á uppleið. Landsframleiðslan ætti að geta aukist um þrjú til fjögur prósent árlega á næstu þremur árum.
Kom þetta fram á morgunverðarfundi VÍB þar sem helsti ræðumaðurinn var Lars Christensen, forstöðumaður greiningar danska bankans.
Christensen þessi er þekktastur fyrir að liggja undir miklu ámæli íslenskra embættis-, stjórnmála- og bankamanna árið 2007 þegar hann spáði réttilega að allt væri hér efnahagslega á leið í bál og brand. Var að meginhluta sú spá hans sem varð til þess að stjórnmálamenn íslenskir fóru í mikla ímyndarherferð með bönkunum til að hrekja spá Christensen.
Nú segir hann framtíðina bjartari fyrir landsmenn. Telur hann ólíklegt að höfnun Icesave tefji endurreisn Íslands og spáir áframhaldandi lækkun verðbólgu. Helstu forsendur greiningarinnar eru jákvæður vöruskiptajöfnuður, lækkun á fasteignaverði, minni verðbólga og vanmat á íslensku krónunni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is