Davíð sýnir Bjarna Ben gula spjaldið: Verður að nýta næsta tækifæri rétt

Davíð varar Bjarna við í leiðara Morgunblaðsins í dag. Segir að hann fái kannski annað tækifæri, en hann verði að nýta það tækifæri vel.
Davíð Oddsson skýtur viðvörunarskotum á Bjarna Benediktsson og aðra forystumenn Sjálfstæðisflokksins, í leiðara Morgunblaðsins í dag. Þar gagnrýnir hann þingmenn og forystu flokksins harðlega fyrir að hafa stutt Icesave-samningana á Alþingi og fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þá ítrekar Davíð að halda beri landsfund á þessu ári, en til hans hefur ekki verið boðað.
Davíð telur að forysta flokksins eigi aðeins tvo kosti: “Tilkynna að hún muni fara frá á næsta Landsfundi flokksins, sem ber að halda á þessu ári, ellegar leitast við að endurvinna það traust sem glataðist og fá endurnýjað umboð á fundinum.”
Þá segir hann að forysta flokksins og meirihluti þingflokksins hafi “ekki náð að skýra með sannfærandi hætti hvers vegna hún ákvað að fylgja leiðsögn Jóhönnu og Steingríms í hinu afdrifaríka máli. Bersýnilega las hún ekki rétt hug sinna eigin flokksmanna og virti ekki skýra ályktun þeirra og afstöðu. Af því leiðir að flokksmenn ræða sín á milli hvort hætta sé á að forystan kunni að bregðast með áþekkum hætti í öðrum stórmálum. Þarna liggur trúnaðarbresturinn.”
Davíð segist túlka orð Bjarna, um að hann ætli að vinna traust flokksmanna á ný, með þeim hætti að hann ætli “ekki að berja höfðinu við steininn heldur viðurkenna mistökin í verki“ og að „læra af því sem gerðist.“ Þá telur Davíð að flokksforystan muni „ekki vinna trúnað flokksfólks á ný eins og hendi sé veifað“, en að hún muni hugsanlega fá „annað tækifæri. Sé það mat rétt verður hún að nýta það tækifæri vel. Annað mun örugglega ekki gefast.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is