Forsætisráðherra: Segir Svía hafa lofað lánveitingum þrátt fyrir höfnun Icesave

Nágrannaþjóðir Íslands hafa sýnt höfnun Icesave skilning að sögn forsætisráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fulllyrðir að Svíar hafi gefið íslenskum stjórnvöldum loforð að standa við lánveitingar sínar þrátt fyrir að Icesave samningunum hafi verið hafnað um helgina.
Er það sérstaklega mikilvægt því önnur Norðurlönd eru sögð bíða ákvarðanna Svía varðandi áður en þau reiða sín lán af hendi.
Fór forsætisráðherra yfir niðurstöðu Icesave og næstu skref stjórnvalda vegna þess á Alþingi í dag þar sem þetta kom fram.
Sagði hún stjórnvöld og embættismenn hafa verið í miklum samskiptum við nágrannaþjóðirnar vegna málsins og reynt eftir mætti að skýra út sjónarmið Íslands og hvað þýðingu höfnun þjóðarinnar hefði. Vildi Jóhanna meina að almennt séð væri viðbrögðin yfirveguð og fremur jákvæð en neikvæð.
Ítrekaði Jóhanna að höfnunin þýddi að endurskoða þyrfti nýbirta áætlun stjórnvalda um afnám gjaldeyrishaftanna og sagði ennfremur að tryggja verði áfram farsælt samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is