Forsetinn á Bloomberg: Milljónir dala urðu að milljörðum
Í nýlegu viðtali á viðskiptasjónvarpsstöðinni Bloomberg hélt ólafur Ragnar Grímsson því fram að stórfyrirtækið Rio Tinto ætlaði að fjárfesta hér á landi fyrir „five hundred billion U.S. dollars,“ þ.e. fimm hundruð milljarða dala, í stækkuðu álveri.
Allmargir í viðskiptaífinu hafa undrast þessa himinháu fjárfestingu sem forsetinn boðaði og ekki bætti úr skák þegar talan varð að fimm milljörðum dala í meðförum Morgunblaðsins.
Hið rétta er að Rio Tinto hyggst fjárfesta hér fyrir fimm hundruð milljónir dala, eins og lesa má í þessari frétt Globe and Mail.
Líklegt er að forsetinn hafi mismælt sig, en spyrillinn á hinni alþjóðlegu viðskiptasjónvarpsstöð gerði engar athugasemdir og forsetaembættið hefur ekki leiðrétt misskilninginn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
