Björgólfur Thor ætlar að svara rangfærslum í skýrslu RNA. Ítrekar afsökunarbeiðni

Björgólfur Thor segist vera sá eini, sem við sögu kemur í skýrslu RNA, sem hafi gengist við ábyrgð, en þó fái hann ávallt yfir sig fúkyrðaflaum. Því hyggist hann leiðrétta ýmsar rangfærslur um sig í skýrslunni.
Björgólfur Thor Björgólfsson ætlar að svara rangfærslum um sig í Rannsóknarskýrslu Alþingis á næstunni. Frá þessu greinir hann í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.
Undir yfirskriftinni “Í hjólförum hruns” segist Björgólfur hafa bundið vonir við að skýrslan markaði nýtt upphaf. Hann hafi talið það allra hag að hann sendi ekki frá sér athugasemdir um skýrsluna þegar hún kom út því hún hefði átt að vera upphafsreitur uppbyggingar. Ekkert hafi þó breyst frá því hún kom út og því sé kominn tími til að skýra málstað sinn. Hann hafi þó verið sá eini, sem kemur við sögu í skýrslunni, sem hafi gengist við ábyrgð á málum fyrir hrun.
“Ár er liðið frá því að rannsóknarnefnd Alþingis skilaði af sér skýrslu sinni um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna. Ég fagnaði skýrslunni og bað íslensku þjóðina jafnframt afsökunar á mínum þætti í hruni íslenska fjármálakerfisins.
Ég, eins og flestir aðrir, batt vonir við að skýrslan myndi marka nýtt upphaf og veita þjóðinni nauðsynlega viðspyrnu. Sú hefur því miður ekki orðið raunin. Ég kannast ekki við að nokkur annar, sem kemur við sögu í skýrslunni, hafi gengist við ábyrgð sinni eða viðurkennt að hafa haft nokkur áhrif á gang mála með aðgerðum sínum eða aðgerðaleysi. Þetta á jafnt við um einstaklinga sem stofnanir samfélagsins: Stjórnmálin, stjórnsýsluna, fjölmiðlana, viðskiptalífið, háskólasamfélagið,” skrifar Björgóflur Thor.
“Flestir þeir sem hafa tekið þátt í samfélagsumræðunni hafa hrifsað til sín það eitt úr skýrslunni sem hentar þeirra málstað. Þeir, sem eru í aðstöðu til að hafa áhrif á hvert umræðan leitar, hafa látið óheillaþróunina afskiptalausa. Á meðan brennur upp öll skynsemi og réttsýni,” bætir hann við.
Björgólfur Thor minnir á að alþjóðleg fjármálakreppa hafi skollið á Ísland í kjölfar stærstu lána- og eignabólu sögunnar.
“Fjármálakreppan varð að gengiskreppu vegna gagnleysis krónunnar; að bankakreppu og lánakreppu vegna veikrar stöðu bankanna eftir alltof hraðan og illa grundaðan vöxt; að atvinnukreppu vegna heiftarlegs samdráttar í framleiðslu, neyslu og fjárfestingu; að stjórnmálakreppu vegna vangetu stjórnmálanna til að taka á vandanum; að stjórnlagakreppu vegna ósættis og sundurlyndis. Hins vegar er langt í frá að þetta ábyrgðarleysi forystumanna einkenni almenning. Einstaklingar, fjölskyldur og fyrirtæki semja um mál sín og leysa þau af þrautseigju. Þeirra hlutskipti á að njóta meiri virðingar. Það tryggir að efnahagslífið réttir smám saman úr sér, þrátt fyrir stöðnun umræðunnar.”
Aldrei kallaður fyrir nefndina
Björgólfur Thor gagnrýnir að hafa ekki verið kallaður fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis, sem þó hafi fjallað talsvert um hans mál.
“Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis varð ekki það upphaf sem ég vonaðist til. Ég var sammála þeirri heildarmynd sem nefndin dró upp en ég var ekki sammála allri efnisumfjöllun hennar eða niðurstöðum og ég var mjög ósáttur við vinnubrögð hennar í því er sneri að mér. Mín er víða getið í skýrslunni en ég var þó aldrei kallaður fyrir nefndina. Yfirlýsingar annarra um mig – margar rangar og sumar ótrúlega heimskulegar – voru birtar án andmæla. Fyrir ári taldi ég það allra hag að láta þetta kyrrt liggja. Ég taldi mikilvægara að þjóðinni tækist að gera skýrsluna, þó gölluð væri, að upphafsreit uppbyggingar en að ég sendi frá mér leiðréttingar við rangfærslur viðmælenda nefndarinnar og skýrsluhöfunda sjálfra.
Því miður hefur mér ekki orðið að ósk minni. Skýrslan hefur enn engin áhrif haft til góðs á íslenskt samfélag.
Ég sé því enga ástæðu til að sitja lengur á leiðréttingum mínum á augljósum villum, röngum ályktunum og hreinum uppspuna. Ég mun birta athugasemdir mínar á vef mínum, btb.is, til fróðleiks fyrir áhugamenn um það sem sannara reynist. Ég hef jafnframt óskað eftir því við forseta Alþingis að athugasemdir mínar verði birtar á vef rannsóknarnefndar Alþingis,” segir Björgólfur Thor ásamt því að ítreka fyrri afsökunarbeiðni sína.
“Ég var í aðstöðu til að sjá hættumerki og ég sá sum þeirra, en mér auðnaðist ekki að bregðast við; í sumu gerði ég of lítið, í öðru of seint og í sumu alls ekki neitt. Ef ég og aðrir áhrifamenn í viðskiptum og stjórnmálum hefðum vaknað fyrr og okkur hefði auðnast að vinna saman hefði okkur án vafa tekist að minnka skaðann. En það tókst okkur ekki. Og á því ber ég mína ábyrgð.”
Björgólfur Thor telur að ýmsir séu fastir í “andstyggð umræðunnar” og að hans nafn megi varla koma fram án þess að þess sé krafist að hann verði færður á bak við lás og slá.
“Í kjölfar þessarar greinar bíður mín eflaust hin gamalkunna hrina fúkyrða. Ég neita hins vegar að læðast með veggjum, heldur áskil mér rétt til að skýra málstað minn. Ég vona að þær skýringar komi að gagni, bæði til að upplýsa það sem úrskeiðis fór, en þó miklu fremur til að koma í veg fyrir að mistökin verði endurtekin.”
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is