ESA fær svar sitt innan þriggja vikna. Gert grein fyrir öllum hliðum málsins

ESA fær svar sitt í þessum mánuði ef allt gengur eftir
Unnið er að því innan efnahags- og viðskiptaráðuneytinu að leggja lokahönd á svar það sem eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur ítrekað krafist af stjórnvöldum í kjölfar höfnunar þjóðarinnar á Icesave samkomulaginu við Breta og Hollendinga. Stefnt er að því að ljúka þeirri vinnu eftir tvær til þrjár vikur.
Er vandað mjög til verksins að sögn Árna Páls Árnasonar, efnahagsráðherra, og á það lögð sérstök áhersla að öll sjónarmið málsins komi þar fram. Bréfið sé grunnur að málsvörn Íslands í málinu og það verði að vera afar vel ígrundað og rökstutt í þaula.
Hyggst ráðherrann leita álits allra áður en lokapunktur verður settur á bréfið og þar með taldra þeirra sem andvígir eru samningum vegna Icesave. „Við munum leita samstarfs við fulltrúa ólíkra skoðana til að tryggja að ólík sjónarmið séu endurómuð og þess sé gætt að bestu rök Íslands komi fram og þeim sé til haga haldið í málsvörninni, það er mjög mikilvægt.“
RÚV greindi frá.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is