Skjótt skipast veður. Hannes Hólmsteinn segir forsetann „besta talsmann Íslands“

Hannes er afar sáttur við framgöngu Ólafs Ragnars fyrir Íslands hönd
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands, kallar Ólaf Ragnar Grímsson allra besta talsmann Íslands í viðtali við erlendan miðil.
Þar segir prófessorinn að eftir að forsetinn áttaði sig á óvinsældum sínum hjá þjóð sinni hafi hann snúið blaðinu við svo um munaði.
Ræddi Hannes við fréttastofuna Bloomberg sem leitar álits hjá prófessornum vegna yfirlýsinga Ólafs Ragnars þess efnis að það hafi verið skylda forsetans að hlúa að og styrkja útrás fjármálamanna fyrir hrunið.
Segir Hannes þar um Ólaf:
Hann tók vissulega of djúpt í árinni í stuðningi sínum við íslenska fjármálamenn. Þeir voru reglulegir gestir á bústað forsetans fyrir hrunið. En síðan áttaði Ólafur sig á því að hann yrði að endurheimta vinsældir meðal þjóðar sinnar og gerði það með því að nota mælskulist sína til að verða besti talsmaður íslenskra hagsmuna.
Hannes skrifaði líka um forseta Íslands í október 2009 en þá var Ólafur ekki forseti Íslands í huga Hannesar heldur forseti Náskersins.
Ekki bætti úr skák, að Ólafur Ragnar hafði sumarið 2004 sterk tengsl við illvígasta og skuldugasta íslenska auðmanninn, fjölmiðlakónginn Jón Násker: Dóttir hans var í vinnu hjá Náskerinu, og kosningastjóri hans í forsetakjöri 1996 var forstjóri fjölmiðlafyrirtækis Náskersins.
Og Ólafur Ragnar hélt uppteknum hætti. Þegar heimilisvinur forsetahjónanna, Martha Stewart, kom til Íslands, nýsloppin úr fangelsi í Bandaríkjunum, bauð Ólafur Ragnar í hóf á Bessastöðum, þar sem skilyrðið fyrir boði virtist vera dómur fyrir efnahagsbrot. Þar voru Náskerið, Pálmi í Fons og aðrir þeir, sem sett hafa Ísland á hliðina.
Ólafur Ragnar er ekki forseti þjóðarinnar. Hann er forseti Náskersins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is