Fimmtudagur 14.04.2011 - 20:59 - Ummæli ()

Vinstri grænir í kjördæmi Ásmundar vilja að hann segi af sér þingmennsku

Bakland Ásmundar Einars á Vestfjörðum vill að hann segi af sér þingmennsku sem allra fyrst.

Vinstri grænir á Vestfjörðum vilja að Ásmundur Einar Daðason segi þegar í stað af sér þingmennsku. Telja þeir þingmanninn hafa svikið kjósendur sína og verði því að segja af sér. Félagsfundur VG samþykkti áskorun þessa efnis í kvöld, en Ásmundur Einar er þingmaður norðvestur kjördæmis.

Ályktun félagsfundar VG á Vestfjörðum í kvöld er svohljóðandi:

“Félagsfundur svæðisfélags Vinstri Grænna á Vestfjörðum haldinn á Ísafirði 14. apríl 2011 skorar á Ásmund Einar Daðason, sem kjörinn var á þing fyrir flokkinn í kjördæminu að segja nú þegar af sér þingmennsku. Þingmaðurinn er kosinn í nafni flokksins og hefur setið þar í umboði kjósanda hans. Ásmundur Einar hefur samþykkt vantraust á ríkisstjórn sem VG á aðild að og sagt sig úr þingflokknum án samráðs við félögin sem að framboði hans stóðu og því ekki hægt að sjá að hann geti setið áfram í umboði kjósenda VG. Jafnframt óskar félagið eftir því að Ásmundur Einar boði til fundar með flokksmönnum hið allra fyrsta þar sem hægt verður að fara yfir þetta mál.”

Í fréttum RÚV í kvöld sagði Guðný Hildur Magnúsdóttir, formaður VG á Vestfjörðum, það hafa verið mikið áfall fyrir félagsmenn að Ásmundur Einar skyldi styðja vantraust Sjálfstæðisflokksins. Sagði hún þingmanninn hafa gert það án nokkurs samráðs við félaga sína í kjördæminu, sem væri ámælisvert að hennar mati.

„Mín skoðun er sú að það sé ekki rétt að þingmenn geti sagt sig úr þingflokki en haldið áfram að starfa sem þingmenn. Þingmenn eru fulltrúar stórs hóps fólks og eiga að starfa sem slíkir en ekki á eigin vegum og eru fyrst og fremst fulltrúar okkar. Svo ég er mjög ósátt við það sem hefur gerst,” sagði hún.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is