Mánudagur 18.04.2011 - 19:44 - Ummæli ()

Sagður hafa dregið sér 15-20 milljónir af ársframlagi til hægri flokka

Starfsmaðurinn hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hafði aðstöðu á skrifstofum flokksins í Valhöll.

Starfsmaður íhaldshóps Norðurlandaráðs á Íslandi er talinn hafa dregið sér 15 til 20 milljónir króna, eða meira en helming þess fjár sem hópurinn fær til umráða frá Norðurlandaráði árlega.

Í fréttum Sjónvarpsins í kvöld kom fram að flokkahópur hægrimanna fær 28 milljónir króna árlega frá Norðurlandaráði. Féð er ekki alltaf nýtt til fullnustu og þá er afgangurinn lagður í varasjóð. Maðurinn mun hafa fært á milli 15 og 20 milljónir úr varasjóðnum yfir á eigin bankareikninga og beitt til þess skjalafölsunum.

Mannsins, sem heitir Páll Heimisson, var leitað eftir að Sjálfstæðisflokkurinn sendi frá sér tilkynningu um fjárdráttinn á föstudag, en þá kom í ljós að maðurinn væri staddur í New York. Það var ekki fyrr en í dag að maðurinn kom í leitirnar, en í millitíðinni hafði utanríkisráðuneytið lagt lóð á vogarskálar við leit að honum.

Hinn meinti fjárdráttur hefur verið kærður til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is