Viðskipti Mánudagur 18.04.2011 - 12:18 - Ummæli ()

LÍÚ: Þóðaratkvæðagreiðsla um kvótann hið besta mál

Framkvæmdastjóri LÍÚ segir atkvæðagreiðslu um kvótann hið besta mál

Landsambands íslenskra útvegsmanna setur sig ekki upp á móti þjóðaratkvæðagreiðslu um fiskveiðistjórnunarkerfið ef það er það sem Alþingi ákveður. Köllum eftir slíku fer nú mjög fjölgandi eftir að forseti Íslands hefur nú ítrekað sent umdeild mál í dóm þjóðarinnar.

Það er hið besta mál segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, við DV að því gefnu að klárt sé um hvað þær kosningar snúa.

Friðrik hafnar því að krafa Samtaka atvinnulífsins um aðkomu að frumvarpi um fiskveiðistjórnun sé eitthvað nýmæli. Stjórnvöld hafi lengi vitað í hvað stefndi.

Það er auðvitað ömurlegt að þessi staða sé komin upp en þá er heldur ekkert annað að gera en að höggva á hnútinn. Ef það yrði ráðist að einhverri annarri atvinnugrein með sama hætti þá væri eðlilegt að það yrði tekið upp í kjarasamningaviðræðum. Launþegahreyfingin er alltaf með fjölda atriða gagnvart ríkisvaldinu. Það er ekkert sérstakt með þetta mál og ekkert nýtt í því.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is