Össur segir LÍÚ ganga fram úr hófi og vill þjóðaratkvæði um kvótakerfið
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, telur að útgerðarmenn hafi gengið fram úr hófi í persónulegri gagnrýni á Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, en í gær sagði framkvæmdastjóri LÍÚ að hún hefði lent í starfi sem hún réði ekki við.
Össur segist reiðubúinn að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið, enda gangi það ekki að hagsmunasamtök komi í veg fyrir að Alþingi setji lög.
Þetta kom fram í viðtali við Össur í morgunþætti Bylgjunnar. Taldi hann óverjandi að útgerðarmenn hefðu hleypt upp almennum kjarasamningum til þess að mótmæla því að Alþingi setti ný lög um fiskveiðistjórnun.
„Í þessu tilviki er málið mjög einfalt. Það var búið að semja um kjaramál,“ sagði Össur um það að Samtök atvinnulífsins hefðu fallið frá undirskrift kjarasamninga vegna kröfu frá LÍÚ um að ekki yrði hróflað við kvótakerfinu. Þá sagði hann að þessu „gríðarlegu átök við LÍÚ hafi þjappað ríkisstjórnarliðinu saman.“
Össur sagðist ávallt hafa viljað ná sáttum við útgerðarmenn, en þessi harkalegu viðbrögð þeirra kalli á ákveðin viðbrögð af hálfu Alþingis. Vísaði hann til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin, sem hann taldi hafa gengið vel, þar sem vilji þjóðarinnar hafi komið fram með skýrum hætti.
„Eftir Icesave þjóðaratkvæðagreiðsluna, þá tel ég tímabært að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið. Til er ég,“ sagði Össur.
Stjórnin heldur meirihluta en Framsókn velkomin
Össur ræddi jafnframt ríkisstjórnarsamstarfið og minnti á að stjórnin hefði enn meirihluta á Alþingi og taldi hana hafa styrk til að koma sínum málum í gegnum þingið.
„En ef það er flokkur á Alþingi, sem sýnir áhuga á að taka þátt í ríkisstjórnarsamstarfinu, þá ber okkur að taka það alvarlega. En það eru engar formlegar viðræður í gangi, ekki heldur neinar óformlegar. Ég held að ég vissi af þeim, ef svo væri.“
Össur minnti á að hann hefði sjálfur viljað að Framsóknarflokkurinn yrði hluti af ríkisstjórninni fyrst þegar hún var mynduð. Því væri umræðan um að Framsóknarflokkurinn, eða hluti hans, gengi til liðs við ríkisstjórnina ekki óeðlileg.
Hann sagði ekki aðeins Siv Friðleifsdóttur og Guðmund Steingrímsson hafa sýnt áhuga á að ganga til liðs við stjórnina, heldur ætti hið sama við um Eygló Harðardóttur, ritara Framsóknarflokksins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
