Róbert Wessmann: Segir engar mútur hafa verið greiddar á Spáni

Héraðið Murcia á Spáni en þar hugðust Róbert og Björgólfur byggja af miklum móð
Fjárfestirinn Róbert Wessmann fullyrðir að engar mútugreiðslur hafi verið greiddar vegna fasteignaverkefnis hans og Björgólfs Thors Björgólfssonar í Murcia héraði á Spáni eins og ráðgjafi sem að verkinu kom mælti með á sínum tíma.
Er Róbert þar að svara DV vegna fréttar blaðsins um að sex milljónir evra hafi verið greiddar forkólfum í sveitarstjórn ytra „til að liðka fyrir samningum.“ Keyptu þeir félagið mikið landflæmi í héraðinu og átti að byggja þar hótel, golfvöll og íbúðir.
Mælti Haukur Harðarson, einn ráðgjafa verkefnisins, með því að greiða milljónir evra til að auðvelda samþykkt kaupanna og áætlunarinnar af hálfu sveitarfélagsins en slíkar mútur hafa verið algengar á Spáni. Segir í tilkynningu Róberts að ekki hafi verið farið að þeim ráðleggingum.
Í tilefni af umfjöllun DV í dag um viðskipti eignarhaldsfélagsins AB Capital vegna fasteignaverkefna á Spáni, þá vil ég koma eftirfarandi á framfæri.
Ég hef verið hluthafi í AB Capital frá stofnun félagsins árið 2005 ásamt Björgólfi Thor Björgólfssyni. Á þeim tíma önnuðust starfsmenn hans arðsemisgreiningu fyrir umrætt fjárfestingaverkefni og unnu að fjármögnun þess, ásamt því að sjá um daglega verkstjórn.
Við undirbúning verkefnisins var framkvæmd lögfræðileg áreiðanleikakönnun af Logos. Haukur Harðarson arkitekt vann auk þess úttekt á verkefninu og fasteignamarkaðnum á Spáni. Skýrsla Hauks er gerð að umfjöllunarefni og rekur blaðið ýmsar skoðanir hans á verkefninu og markaðsaðstæðum á Spáni. Skýrslan endurspeglar á engan hátt hvernig umrætt verkefni var unnið í kjölfarið.
Engir fjármunir runnu til embættismanna eða seljenda vegna umsjónarkostnaðar. Framgangur umræddrar fjárfestingar undirstrikar það jafnframt enda hafa tilskilin byggingaleyfi ekki enn fengist.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is