SA: Vill semja um framtíð kvótakerfisins en líst illa á þjóðaratkvæði
Lög um stjórnun fiskveiða henta illa til þjóðaratkvæðagreiðslu að mati framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sem vill að ráðherrar beiti sér fyrir lausn deilunnar fremur en að virða hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu. Kjarasamningar verði ekki gerðir nema með samningum við Samtök atvinnulífsins.
Nokkrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa gagnrýnt SA harðlega fyrir að setja almenna kjarasamninga í gíslingu með því að krefjast þess að kvótakerfið standi því sem næst óbreytt. Nú taldi Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, það koma vel til greina að leggja fiskveiðstjórnun í þjóðaratkvæði, líkt og Eyjan greindi frá í morgun.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að ráðherrann ætti fremur að beita sér fyrir lausn deilunnar um framtíð sjávarútvegsins innan ríkisstjórnarinnar, því ekkert verði að langtíma kjarasamningum án slíks samkomulags.
„Mér finnst bara ágætt að Össur fari að tjá sig um málið því hann er einn af þessum mönnum sem gæti leyst þetta mál ef hann færi og fengi að beita sér í því,“ sagði Vilhjálmur.
En hvað getur þetta mál hangið í óvissu lengi, er ekki pattstaða í málunum?
„Ég held að svo reyndur stjórnmálamaður sem forsætisráðherra er hljóti að sjá að á endanum þarf að leysa þetta mál með sátt og samningum eins og önnur mál.“ Þetta mál henti hins vegar illa til þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Sjávarútvegsmálin og þessi löggjöf um fiskveiðar er lifandi löggjöf sem þarf alltaf að breyta öðru hverju eftir aðstæðum. Og það getur verið mjög óhöndulegt ef þarf alltaf að setja slíkar breytingar í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Vilhjálmur.
Best væri að ná þokkalega víðtækri sátt um málið, þannig að greinin geti starfað eðlilega og stjórnmálamenn lifað með slíkri sátt.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
