Tæplega 1.700 tómar íbúðir en Samtök iðnaðarins vilja byggja meira

Samtök iðnaðarins telja tilefni til að byggja fleiri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu
Byggja þarf fleiri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu að mati Samtaka iðnaðarins þrátt fyrir að nýleg talning sýni að tæplega 1.700 íbúðir standi tómar. Benda samtökin á að stórir hópar ungs fólks sé að koma inn á fasteignamarkaðinn og þessi fjöldi dugi skammt.
Til þess að það gangi eftir þurfa þó sveitarfélög að lækka gjöld sín hið fyrsta til að koma byggingamarkaðnum af stað á ný að því er fram kemur í máli talsmanna Samtaka iðnaðarins við Morgunblaðið.
Hafa samtökin nýlega lokið við talningu tómra íbúða víða um landið en slíka könnun hafa þau gert áður og síðast í fyrra. Þá reyndust tómar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu vera um tvö þúsund talsins og hefur því fækkað um 300 milli ára. Það segja samtökin skýrt merki um nauðsyn þess að byggja meira og þá sérstaklega minni íbúðir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is