Þingmaður: Blaðrið í Ólafi getur kostað okkur stórfé

Björn Valur Gíslason segir forsetann hafa talað niður verð á eignum Landsbankans í Bretlandi. (Mynd: Pressphotos.biz)
„Fyrir nokkrum dögum var sagt frá því í Financial Times að búist væri við að um 2 milljarðar punda fengjust fyrir Iceland Foods eða um 370 milljarðar króna.
En þá gerðu menn ekki ráð fyrir forseta Íslands.“
Þannig skrifar Björn Valur Gíslason alþingismaður og einn helsti talsmaður Vinstri grænna í Icesave-samkomulaginu á vef sinn.
Hann segir framgöngu forsetans í erlendum fjölmiðlum geta kostað Íslendinga stórfé:
„Nú er sagt frá því í erlendum fjölmiðlum að forsetinn, með framgöngu sinni í erlendum miðlum, sé að þrýsta á sölu á eignum búsins sem aftur hefur orðið til þess að fjárfestar hafa kippt að sér höndunum og bíði verðlækkunar. Framganga forsetans í erlendum fjölmiðlum mun því væntanlega verða til þess að minna fáist fyrir eignirnar en ráð var fyrir gert og eftirstöðvar og vextir hærri sem því nemur.
Samkvæmt 11.gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands er forsetinn ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum.Hann hefur hinsvegar vald og vald án ábyrgðar getur verið hættulegt. Þetta ætti að útskýra fyrir erlendum fjölmiðlum.
Það er því ekki spurning um hvort forseti Íslands er skaðlegur íslensku þjóðinni í þessu máli – heldur hversu mikið.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is