Viðskipti Þriðjudagur 19.04.2011 - 20:10 - Ummæli ()

Borgin skal vera fín. Loks skal beita húseigendaskussa sektum

Fjölmörg hús í miðbæ Reykjavíkur eru lítið augnayndi en nú boðar borgin aðgerðir

Reykjavíkurborg á að vera eins fín og borgarbúar eiga skilið og því hyggjast borgaryfirvöld fara að taka harðar á eigendum þeirra húsa í borginni sem eru í niðurníðslu. Hefur borgin haft sig hæga með sektir eða aðrar aðgerðir í kjölfar kreppunnar en nú verður ekki tekið á skussum neinum vettlingatökum.

Verður sektum beitt að sögn Dags B. Eggertssonar, formanns borgarráðs, en íbúðasamtök í miðborginni eru meðal þeirra sem gagnrýnt hafa linkind borgaryfirvalda vegna húsa sem þykja lýti á borginni. Hafa köll eftir aðgerðum orðið háværari og því vill Dagur nú bregðast við.

Aðspurður hvort grípa eigi til dagssekta á næstu misserum svarar Dagur því játandi. „Já, við munum gera það og öðrum úrræðum. Öflugustu úrræðin eru raunar hjá slökkviliðinu ef um er að ræða hættu eða annað slíkt.  Meginmálið er það að enginn á að geta komist upp með það að láta hús eða önnur verðmæti standa undir skemmdum öllum til ama.“

Dagur hefur reyndar áður haft uppi stór orð um að hreinsa miðbæ Reykjavíkur. Hann sagði fjölda húsa í niðurníðslu vera hálfgert tákn um getuleysi borgaryfirvalda til að taka á málunum í mars 2008. Síðan þá hefur húsum í niðurníðslu fjölgað.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is