Viðskipti Þriðjudagur 19.04.2011 - 19:20 - Ummæli ()

Forsætisráðherra telur vel til greina koma að setja kvótamálin í dóm þjóðarinnar

Kvótamálið gæti vel farið í þjóðardóm segir forsætisráðherra

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur vel koma til greina að setja framtíð fiskveiðistjórnunar landsins í dóm þjóðarinnar með atkvæðagreiðslu. Sú atkvæðagreiðsla gæti orðið samhliða tillögum stjórnlagaráðs þegar þær liggi fyrir.

Tjáði Jóhanna sig um þetta í dag en sem kunnugt er hafa Samtök atvinnulífsins hafnað frekari kjaraviðræðum nema að stjórnvöld taki tillit til krafna samtakanna um framtíð fiskveiðikerfisins hérlendis.

Ekkert bólar enn á nýju frumvarpi um það mál sem leggja átti fram á yfirstandandi þingi en Jóhanna segir að útvegsmenn megi ekki komast upp með að koma í veg fyrir gerð kjarasamninga vegna þessa máls.

Beindi Jóhanna þeim orðum til Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í fréttum Stöðvar 2 að sýna raunsæi varðandi þetta mál. „Hann veit jafnvel og ég að þegar uppi eru deilumál þurfa menn að hafa raunsæi efst í huga og hverju er hægt að ná fram í raunveruleikanum.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is