Ráðleggur fyrirtækjum að hætta að greiða fjármögnunarsamninga

Ráðleggur fólki að hætta að greiða af fjármögnunarsamningum sínum
Héraðsdómslögmaður ráðleggur þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem gerðu fjármögnunarsamninga þá er héraðsdómur hefur nú dæmt ólögmæta til að hætta að greiða af slíkum samningum. Ljóst sé miðað við dóminn að menn hafi ofgreitt töluvert hingað til.
Vísir greinir frá þessu áliti Einars Huga Bjarnasonar lögmanns, en hann er með eitt sambærilegt mál á sinni könnu og mál það sem dómur féll í fyrir héraðsdómi í gær.
Segir lögmaðurinn ástæðulaust að greiða af slíkum samningum nú þegar fyrirséð er að málið fari fyrir Hæstarétt en gert er ráð fyrir að þar verði það tekið fyrir snemmsumars. Eins og málið líti út nú hafi þeir sem séu með slíka samninga nú væntanlega ofgreitt einhverjar fjárhæðir og engin ástæða til að bæta við þá upphæð.
Einar segir dóminn geta haft alvarleg áhrif á fyrirtæki á borð við Lýsingu sem gerði marga slíka samninga fyrir bankahrunið. Hann útilokar ekki að eins fari um Lýsingu og lánafyrirtækið Avant þar sem fyrirtækið færi í slitameðferð og gæti ekki greitt allar kröfur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is