Skúli fékk 400 milljóna króna afskriftir hjá Landsbankanum

Stærsti eigandi MP banka er ekki ókunnur miklum afskriftum
Athafnamaðurinn Skúli Mogensen sem nýverið keypti MP banka ásamt fleiri aðilum fékk 400 milljóna króna skuld við Landsbankann afskrifaða árið 2003. Ári síðar keypti Skúli fyrirtækið Oz ásamt öðrum á tvo millljarða króna. Skúli er stærsti einstaki hluthafi MP banka í dag.
Samkvæmt fréttum RÚV fékk Skúli lán fyrir allt að einum milljarði króna árið 2001 en þá var Skúli einn eigenda tölvufyrirtækisins Oz. Fékk hann þessi lán að hluta gegn veðum í hlutabréfum í Oz og fleiri fyrirtækjum en verðgildi þeirra bréfa hríðféll nokkru síðar. Greip Landsbankinn til þess ráðs að afskrifa 400 milljónir af skuld Skúla áður en yfir lauk.
Eftir þetta flutti Skúli til Kanada og ári eftir afskriftirnar keypti hann í samvinnu við bandaríska aðila fyrirtækið Oz á nýjan leik. Var Oz selt til farsímarisans Nokia haustið 2008.
Hefur síðan borið lítið á Skúla fyrr en fyrir skömmu þegar hann leiddi hóp fjárfesta sem vildu kaupa MP banka. Hefur það nú gengið í gegn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is