Þorsteinn Pálsson: Alvarleg lýðræðisflækja vegna Evrópumála á þinginu

Evrópusambandsmál í öngstræti þvert á hug kjósenda valda Þorsteini áhyggjum
Í síðustu kosningum til Alþingis höfðu þrír stjórnmálaflokkar Evrópusambandsaðild á dagskránni. Nú er aðeins einn flokkur eftir með þá stefnuskrá þó að kjósendur hafi ekki skipt um skoðun á sama veg og flokkar á þinginu. Þetta veldur alvarlegri lýðræðisflækju.
Svo metur Þorsteinn Pálsson, fyrrum ráðherra og ritstjóri Fréttablaðsins, stöðuna á Alþingi í dag og vísar þar til þess öngstrætis sem Evrópusambandsmál virðast föst í inni á þinginu. Þannig hafi minnihlutahópar þriggja flokka nánast frosið inni með það mál og slíkt sé óeðlilegt að mati Þorsteins.
Kannanir benda til að um það bil sextíu hundraðshlutar þjóðarinnar vilji ljúka aðildarviðræðunum og um fjörutíu af hundraði styðji aðild nú þegar. Aðeins tæpur helmingur þessara kjósenda fylgir Samfylkingunni að málum. Ívið stærri hluti fylgir öðrum flokkum. Þannig eru stuðningsmenn aðildar og aðildarviðræðna stór minnihluti í kjósendahópi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins og talsverður hluti kjósenda VG.
Eins og sakir standa hafa þessir minnihlutahópar þriggja flokka að mestu frosið úti frá áhrifum á Alþingi með þetta mál. Að öllu óbreyttu verður sama staða uppi á teningnum eftir næstu kosningar. Evrópumálin verða þá enn í uppnámi og stefnuleysi í peningamálum allsráðandi. Að sjálfu leiðir að líklegasta stjórnarmynstrið eftir kosningar er áframhaldandi seta núverandi stjórnarflokka með Framsóknarflokknum.
Eigi Alþingi að endurspegla viðhorf þjóðarinnar þarf að finna Evrópusjónarmiðum kjósenda fjögurra flokka eðlilegan farveg til áhrifa þar. Í ljósi þess að aldarfjórðung tók að leiðrétta kjördæmaskipanina má draga í efa að sú lýðræðisumbót sé í augsýn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is