Viðskipti Sunnudagur 24.04.2011 - 10:00 - Ummæli ()

Könnun: Mikil óánægja með störf Jóhönnu sem forsætisráðherra

Í nýrri viðhorfskönnun Eyjunnar kemur fram mjög afgerandi óánægja með störf Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra.

Eyjan spurði viðhorfshóp sinn: „Ertu ánægð/ur með störf Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra?“ Alls greiddu 1.068 atkvæði.

Af þeim sagði 291 já eða um 27 prósent. Nei sögðu 532 eða um helmingur. Aðrir voru ekki vissir eða vildu ekki svara spurningunni (sjá mynd).

Ef aðeins eru reiknaðir þeir sem tóku afstöðu eru um 65 prósent óánægð með störf Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra. Um 35 prósent eru ánægð með Jóhönnu.

Rétt er að taka fram að viðhorfskönnun sem þessi stenst ekki kröfur sem félagsvísindin gera til skoðanakannana, en getur verið mjög sterk vísbending ef niðurstaðan er afgerandi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is