Viðskipti Sunnudagur 24.04.2011 - 08:30 - Ummæli ()

Snæfellingar vilja Ásmund Einar burt. „Eins máls þingmaður“ án tengsla

Snæfellingar í Vinstri grænum kalla Ásmund „eins máls þingmann.“

Félagsmenn Vinstri grænna í Grundarfirði og Stykkishólmi krefjast þess að Ásmundur Einar Daðason alþingismaður segi af sér þingmennsku og hleypi á þing fulltrúa flokksins sem styður ríkisstjórnina og er tilbúinn að vinna að stefnu flokksins í víðu samhengi.

Svo segir í ályktun sameiginlegs fundar.

Þar segir ennfremur:

„Þar sem Ásmundur Einar tók þá ákvörðun að styðja ekki sitjandi ríkisstjórn sem Vg er aðili að heldur samþykkja vantrauststillögu Sjálfstæðisflokksins teljum við eðlilegt og sanngjant að Ásmundur Einar víki af þingi.

Ákvörðun Ásmundar Einars er tekin án alls samráðs og án vitneskju félagsmanna Vg á áðurnefndu svæði enda hafa tengsl Ásmundar við félagsmenn Vg í Grundarfirði og Stykkishólmi verið í lágmarki frá kosningum.

Við þær erfiðu aðstæður sem þjóðin stendur frammi fyrir og til að verja þann góða árangur sem þegar hefur náðst í endurreisn landsins eftir hrun frjálshyggjunnar er mikilvægt að alþingismenn horfi til framtíðar. Eins máls málflutningur alþingismanna er ekki vænlegur til árangurs.

Svæðisfélög Vg í Grundarfirði og Stykkishólmi lýsa yfir fullum stuðningi við ríkisstjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Samfylkingarinnar.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is