Árni Páll kallar stjórnendur Seðlabanka og Samkeppniseftirlits á teppið
Árni Páll Árnason, efnahags og viðskiptaráðherra, ætlar að kalla á fulltrúa Seðlabanka og Samkeppniseftirlits í vikunni til að fara þann hnút sem hefur myndast eftir að Samkeppniseftirlitið ákvað að beita Seðlabankann dagsektum. Ráðherrann telur slíkt ekki æskilegt og vill að stofnanirnar finni lausn á þeirri deilu.
Samkeppnisstofnun óskaði fyrir nokkru eftir upplýsingum um útlán einstakra banka og sparisjóða frá Seðlabankanum, en aðeins þannig geti stofnunin kannað hvort samkeppni er virk. Seðlabankinn synjaði beiðninni og bar við trúnaði og þagnarskyldu. Við þetta var Samkeppniseftirlitið ekki sátt, sagði Seðlabankann brotlegan við samkeppnislög og lagði á hann sektir í liðinni viku, eina og hálfa milljón á dag þar til úr rætist.
Báðar stofnanir heyra undir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra. Í hádegisfréttum RÚV sagði hann að farið verði yfir málið í næstu viku.
„Þetta er auðvitað ekki æskilegt ástand og það skiptir máli að greiða úr þessari stöðu. Allar stofnanir eiga að geta sinnt sínu lögbundna hlutverki og það eiga ekki að vera múrar á milli stofnanna sem kom í veg fyrir aðgang að nauðsynlegum upplýsingum,“ segir Árni Páll. Það sé líka mikilvægt að þeir sem láta trúnaðarupplýsingar í té til tiltekinna stofnanna geti treyst því að farið sé með þær af ákveðinni virðingu.
„Þarna þarf að finna meðalhóf og við munum reyna að greiða úr þessari stöðu með þessum stofnunum í næstu viku og finna farsæla lausn,“ segir Árni Páll Árnason.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is