Kristján Þór: Afskiptasemi fyrrum forystumanna er ljóður á íslenskri pólitík

Kristján segir að gagnrýna megi alla fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokksins fyrir það sem þeir hafa sagt. (Mynd: Pressphotos.biz)
„Það er ljóður á íslenskri pólitík hve afskiptasamir fyrrverandi forystumenn í öllum flokkum eru varðandi viðfangsefni þeirra sem tekið hafa við keflinu. Þetta á við Sjálfstæðisflokkinn en ekki síður aðra flokka,“ segir Kristján Þór Júlíusson oddviti Sjáflstæðisflokksins í helgarviðtali Björns Inga Hrafnssonar á Eyjunni.
Kristján Þór er ekki sáttur við allt sem núverandi og fyrrverandi formenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt til opinberrar umræðu að undanförnu:
„Vissulega má tiltaka ýmislegt sem Bjarni Benediktsson, Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson hafa sagt opinberlega síðustu mánuði, sem ég hefði kosið að hefði verið látið ósagt eða orðað með öðrum hætti.“
Aðspurðu hvort Bjarni Benediktsson hafi gert mistök með afstöðu sinni í Icesave-málinu sem ýmsir flokksmenn eru honum svo reiðir yfir segir Kristján Þór:
„Það er erfitt að gagnrýna menn sem fylgja sannfæringu sinni. En það er rétt að margir góðir sjálfstæðismenn eru reiðir yfir afstöðu meirihluta þingflokksins í Icesave-málinu. Og ég skil þá reiði – hún er eðlileg og sanngjörn. Ég held að við getum lært mikið af því hvernig við þingmenn Sjálfstæðisflokksins héldum á málinu – við vorum ekki í því sambandi við flokksmenn sem við hefðum þurft að vera áður en tekin var afstaða í svo umdeildu máli, ekki síst þegar eindregin afstaða landsfundar er höfð í huga.“
„Viltu sjá kosningar?
Já, það er nauðsynlegt að endurnýja umboð þingsins. Það er útséð með að þingmenn nái að breyta starfsháttum sínum í takt við þær kröfur sem gerðar eru út í þjóðfélaginu. Þingmenn, hvort sem þeim líkar það betur eða verr, verða því að leita eftir endurnýjuðu umboði. Margir munu örugglega frá nýtt umboð, en aðrir ekki og í stað þeirra koma nýir.
Kæmi til greina að Sjálfstæðisflokkurinn gangi til liðs við núverandi stjórnarflokka til þess að styrkja ríkisstjórnina?
Nei ekki undir neinum kringumstæðum. Við sjálfstæðismenn höfum lagt fram fjölda tillagna í góðri trú, tillögur sem miðað við að því að brjóta upp kyrrstöðuna og koma hjólum efnahagslífsins af stað og tryggja fjárhagslega stöðu heimila og fyrirtækja. Þessar tillögur hafa fallið í grýttan jarðveg. Ríkisstjórnin hefur farið sínu fram og því er staðan sú sem raun ber vitni.“
Helgarviðtalið í heild má lesa hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is