„Þarf ég að útskýra brandarana til að koma til móts við fólk með þroskaröskun?“

Ýmislegt í nýjum fjölmiðlalögum er torskilið eins og sjá má í bréfi Gylfa Ólafssonar
Gylfi Ólafsson sem heldur úti blogginu gyl.fi er í öngum sínum. Hann virðir lög og reglur og vill gjarnan reyna að uppfylla að öllu leyti þær kröfur sem nú eru á hann gerðar vegna fjölmiðils þess sem hann á og rekur samkvæmt nýjum fjölmiðlalögum.
Eyjubloggarinn Andrés Jónsson gerir að umtalsefni ný fjölmiðlalög sem gildi hafa tekið og mörgum þykja bæði tímaskekkja og ekki síður torskilin.
Einn þeirra sem ekki er viss um allt sem farið er fram á lögum samkvæmt er Gylfi Ólafsson sem óttast fangelsi standi hann sig ekki í stykkinu og hefur þess vegna skrifað útvarpsréttarnefnd bréf þar sem hann óskar hjálpar og útskýringa á ýmsu því er í nýju lögunum er.
Sælinú,
samkvæmt nýsamþykktum lögum er bloggið mitt fjölmiðill. Ég er samkvæmt lögunum fjölmiðlaveita (2. gr). Það helgast af því að ég miðla ritefni á rafrænu sniði. Þar sem ég stýri því efni sem fer inn á vefinn, flokkast vefurinn lúta undir ritstjórn, samkvæmt skilgreiningu laganna (2. gr).
Ég býst við að þurfa að senda árlegar skýrslur um kynjakvóta og annað sem fram kemur í 23. grein laganna. Ég mun reyna mitt besta til að þýða ólínulegt efni sem ég birti á vefnum mínum (les. jútjúb-klipp) (29. gr), gera það aðgengilegt þroskahömluðum (30. gr) og passa að efnið kyndi ekki undir hatri á trúuðum eða trúleysingjum (27. gr). Þá mun ég gefa áfangaskýrslur um hvernig mér gengur að vinna gegn staðalímyndum um kynin. (23. gr)
1. Hvernig er hatur skilgreint? Má ég segja á blogginu mínu að hinir og þessir séu með heimskulegar skoðanir án þess að kynda undir hatri á grundvelli skoðana þeirra? (27. gr.) Má ég segja að þeir sem samþykktu fjölmiðlalögin séu rugludallar? Kyndir það undir hatri?
2. Hver er tímafresturinn til að skila inn reglum um ritstjórnarlegt sjálfstæði? Getur maður farið í fangelsi ef maður skilar þeim ekki inn? (24. gr.)
3. Er miðlun skv. 30. gr. það að sýna jútjúb-myndskeið á vefnum sínum (þ.e. ekki með tengli heldur sk. “embed”?) Ef svo er, eru til starfsreglur eða viðmiðanir um hvernig best er að koma til móts við fólk með þroskaröskun og sjóntruflanir? Ef ég birti uppistand eða grín, þarf að útskýra brandarana til að koma til móts við fólk með þroskaröskun?
4. Hver er tímafresturinn til að móta málstefnu? Getur maður farið í fangelsi ef maður mótar ekki málstefnu? (29. gr og 56. gr.)
Ég óska eftir svari sem fyrst, því ég vil nefnilega ekki fara í fangelsi fyrir að brjóta lögin (sbr. 56. gr.).
Með bestu kveðjum,
Gylfi Ólafsson
fjölmiðlaveita
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is