Viðskipti Þriðjudagur 03.05.2011 - 19:28 - Ummæli ()

Allt gott sem endar vel. Kjarasamningar undirritaðir í kvöld eða nótt

Eftir stóryrtar yfirlýsingar beggja deiluaðila virðast samningar að mestu í höfn

Kjarasamningaaðilar telja góðar líkur á að undirritaður verði nýr kjarasamningur til þriggja ára í kvöld eða nótt. Hafa forkólfar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands fundað í allan dag og er á mönnum að heyra að aðeins herslumuninn vanti.

Er um verulegan umsnúning að ræða hjá báðum deiluaðilum en hótanir um hugsanleg allsherjarverkföll í maí auk útspils ríkisstjórnarinnar virðast hafa dugað til að ná sáttum.

Um þriggja ára samning er að ræða sem nú er á borðinu þrátt fyrir að talsmenn launafólks hafi að undanförnu alfarið hafnað slíkum langtímasamningi.

Eyjan mun áfram fylgjast með gangi mála og skýra frá því ef samningar nást fyrir miðnætti.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is