ESB og AGS lána 78 milljarða evra til bjargar Portúgal
Stjórnvöld í Portúgal hafa náð samkomulagi við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um 78 milljarða evra lánapakka til bjargar efnahagslífi landsins.
Þetta jafngildir um 13 þúsund milljörðum króna.
Jose Socrates, forsætisráðherra fráfarandi stjórnar Portúgals, sagði í gærkvöld að samningsskilmálarnir væru hagstæðir Portúgölum. Þannig mætti fjárlagahallinn í ár nema 5,9 prósentum af landsframleiðslu, en í fyrstu hefði þess verið krafist að hann yrði 4,6 prósent. Hann mætti svo ekki vera hærri en 4,5 prósent á næsta ári, en þrjú prósent árið 2013, sem eru hin almennu viðmið á evrusvæðinu.
Þannig samþykkja bæði ESB og AGS að fjárlagahalli Portúgals verði hærri en áður var stefnt að, en samkvæmt frétt BBC hafði markmiðið áður verið sett á tvö prósent.
Ekki er þó ljóst hvort samkomulagið verður samþykkt á portúgalska þinginu. Pedro Passos Coehlo, leiðtogi jafnaðarmanna, segist ekki samþykkja að hann verði borinn upp á löggjafarsamkomunni fyrr en eftir þingkosningar 5. júní.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
