Okkar eigin Miðgarður. Borgin vill meira líf í Öskjuhlíðina

Öskjuhlíðardagurinn haldinn hátíðlegur á morgun fyrsta sinni
Borgaryfirvöld hyggjast endurskoða skipulag Öskjuhlíðar með það að markmiði að færa meira líf í þessa náttúruperlu borgarinnar. Verður svokallaður Öskjuhlíðardagur haldinn hátíðlegur fyrsta sinni á morgun.
Mikil saga er tengd Öskjuhlíðinni og er þar meðal annars að finna ýmsar stríðsminjar. Þykir borgaryfirvöldum vera full ástæða til að kynna svæðið sem sé skammt frá Nauthólsvíkinni auk þess sem þar sé fjöldi fínna gönguleiða. Ekki síst gagnvart erlendum ferðamönnum.
Tímasetningin gæti kannski verið betri með tilliti til að skýrt var frá því í dag að lítill drengur stakk sig á notaðri sprautunál við leik í Öskjuhlíð eins og lesa má um í Pressunni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is