Hreindýr varla vestur. Mjög lagst gegn flutningi dýranna til Vestfjarða

Hreindýr hafa plumað sig vel á Austurlandi en menn óttast sýkingar fyrir vestan
Töluverð mótspyrna er við þeim hugmyndum að flytja hluta hreindýra frá Austurlandi og til Vestfjarða í því skyni að styrkja þar atvinnulífið. Hefur Strandabyggð lagst gegn hugmyndunum og sömuleiðis sérfræðingur hjá Matvælastofnun og Yfirdýralæknir. Óttast þeir að hreindýrin beri með sér sjúkdóma.
Fjallar Fréttablaðið um þetta en minnihluti bæjarstjórnar Vesturbyggðar vill koma upp hreindýrastofni á Vestfjörðum til að styrja atvinnulíf og lengja ferðamannatímann.
Lagðist Yfirdýralæknir strax gegn þessari hugmynd og það gerir sérstök sauðfjárveikivarnarnefnd Strandabyggðar einnig með þeim rökum að hreindýr geti tekið ýmsa sauðfjársjúkdóma, má þar nefna garnaveiki, og einnig þykir líklegt að að hreindýr geti borið riðu ásamt ýmsum öðrum smitsjúkdómum.
Þá séu hreindýr bæði rásgjörn og víðförul og ljóst að engar sauðfjárveikivarnarlínur muni halda hreindýrum í skefjum.
Undir þetta tekur Þorsteinn Ólafsson, sérgreinalæknir hjá Matvælastofnun, sem segir heilbrigðasta sauðfjárstofn landsins á austanverðum Vestfjörðum. Það séu því miklir hagsmunir fyrir bændur alls staðar í landinu að ekki berist þangað óæskilegir sjúkdómar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is