Banna brauðgjafir við tjörnina? Eina leiðin til að losna við sílamáva

Mávar þykja vandamál við tjörnina í Reykjavík. Ein aðferð er að banna brauðgjafir með öllu á sumrin
Meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg telur ráð að banna allar brauðgjafir við Reykjavíkurtjörn því það sé eina ráðið sem dugi til að halda sílamávum frá. Eru mávarnir afar aðgangsharðir og er fullyrt að þeir bíti jafnvel brauð úr höndum barna vegna græðgi.
Hingað til hafa allar áætlanir um að halda mávinum frá tjörninni dugað skammt en um tíma var hann skotinn þegar til hans sást við þennan vinsæla áfangastað borgarbúa. Það fækkaði honum tímabundið en fljótlega féll allt í sama farið.
Vandamálið er að mávarnir eru svo aðgangsharðir að þeir éta mestallt brauð frá öðrum og gæfari fuglategundum við tjörnina. Fá borgaryfirvöld árlega fjölda kvartana vegna þessa.
Segir Ómar Dabney, meindýraeyðir, við fréttastofu Stöðvar 2, að vænlegast sé að banna brauðgjafir yfir sumartímann. Aðeins þá verði vandamálið úr sögunni. Þá bendir hann á að nægt æti sé í tjörninni þó engin séu brauðin.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is