Viðskipti Þriðjudagur 10.05.2011 - 12:57 - Ummæli ()

Krónan þarf að veikjast töluvert í viðbót ef ekki á að ganga á gjaldeyrisforðann

Seðlabankastjóri getur illa aflétt gjaldeyrishöftum eins og staðan er næstu árin

Íslenska krónan þarf helst að veikjast töluvert í viðbót frá því sem nú er ef ekki á að ganga verulega á gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands á næstu árum. Er þetta mat hagfræðings hjá Arion banka en þungar endurgreiðslur erlendra lána eru framundan og endurfjármögnun vart í augsýn.

Svo metur Þorbjörn Atli Sveinsson, hagfræðingur greiningardeildar Arion banka, stöðuna núna en hann hélt erindi á morgunfundi bankans í dag en Mbl.is var á staðnum.

Benti hann á að gjaldeyrisforði Seðlabankans væri að langmestu leyti skuldsettur og það til skamms tíma. Lítil svigrúm sé til frekari gjaldeyriskaupa nema að krónan veikist töluvert í viðbót. Það sé því Seðlabankanum í hag að lækka gengi íslensku krónunnar nema að aðgengi að erlendum batni verulega á næstu misserum.

Af þessu dregur Þorbjörn þá ályktun að ólíklegt verði að telja að Seðlabankinn aflétti gjaldeyrishöftum sínum fyrr en áætlað er árið 2016. Næsta ómögulegt sé að aflétta þeim eins og staðan sé.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is