Kvótafrumvarp á lokastigi. Útgerðir borga 5 milljarða árlega fyrir nýtingarrétt

Sjávarútvegsráðherra lét bíða eftir frumvarpi sínu um breytingar á fiskveiðistjórnun en nú er það loks framkomið
Töluverðar breytingar eru fyrirhugaðar á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins samkvæmt því sem lekið hefur út varðandi nýtt kvótafrumvarp sem búist er við að ríkisstjórnin afgreiði í dag. Ráð er fyrir gert að útgerðir greiði fimm milljarða árlega fyrir nýtingarréttinn og því fé verði að stærstum hluta varið til verkefna á landsbyggðinni.
Skulu útgerðirnar leigja aflaheimildirnar til fimmtán ára í senn en alla leigusamninga verður hægt að endurnýja að sjö árum liðnum samkvæmt því sem fréttastofa RÚV hefur heimildir fyrir.
Þá skulu átta prósent allra aflaheimilda fara í sérstaka potta sem svo vex og verður 15 prósent af heildarkvótanum að fimmtán árum liðnum. Er þetta sama hlutfall og fer nú í svokallaðan byggðakvóta. Framsal aflaheimilda verður takmarkað við kerfisbreytingar þegar frumvarpið verður að lögum en allt framsal verður úr sögunni eftir fimmtán ár.
Ríkisstjórnin ræðir nú frumvarpið sem lengi hefur verið beðið eftir enda eitt af kosningaloforðum stjórnvalda. Fallist menn á það í núverandi mynd gæti það tekið gildi haustið 2012.
Seinna frumvarpið sem farið er yfir varðar breytingar á veiðigjaldinu en útkoman er að hækka það um 50 prósent frá því sem nú er strax næsta haust. Eftir það greiða útgerðir 13 krónur á hvert kíló og er áætlað að fimm milljarðar fáist þannig árlega. Töluverður hluti þess fjár fer í ýmsar aðgerðir á landsbyggðinni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is