Viðskipti Þriðjudagur 10.05.2011 - 21:10 - Ummæli ()

Til hamingju Ísland. Vinir Sjonna ekki á heimleið úr Eurovision

Vinir Sjonna á sviðinu í kvöld en framkoman og spilamennskan var óaðfinnanleg

Erindrekar Íslands í Eurovision söngvakeppninni þetta árið, hljómsveitin Vinir Sjonna, komust yfir fyrstu hindrunina í kvöld þegar lag þeirra Coming Home  komst áfram úr undankeppninni og taka Vinir Sjonna því þátt í aðalkeppninni um næstu helgi.

Var það í samræmi við spár flestra veðbanka sem reyndar spáðu laginu áfram en ekki ýkja góðum árangri í aðalkeppninni.

Þjóðirnar sem áfram komust í kvöld eru:

Serbía, Litháen, Grikkland, Aserbadjian, Georgía, Sviss, Ungverjaland, Finnland, Rússland, Ísland


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is