Miðvikudagur 11.05.2011 - 07:41 - Ummæli ()

LÍÚ: Kvótafrumvarpið veikir íslenskt samfélag og er að öllu leyti slæmt

Friðrik J. Arngrímsson vandar Jóni Bjarnasyni og öðrum ráðherrum ekki kveðjurnar.

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, er ósáttur við nýtt frumvarp um fiskveiðistjórnun, sem ríkisstjórnin afgreiddi í gær. Hann telur það fela í sér „afturför fyrir þjóðfélagið“ og er ósáttur við að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafi ekki verið meira með í ráðum.

Sú grundvallarbreyting felst í frumvarpi ríkisstjórnarinnar að framsal varanlegra aflaheimilda verður óheimilt, en kvóti sem aðeins er bundinn til eins árs í senn verður þó framseljanlegur.

„Við höfum ekki fengið þetta frumvarp, en það á að kynna það fyrir okkur á lokuðum trúnaðarfundi,“ segir Friðrik við Morgunblaðið. Hann segist ekki hafa fengið boð á slíkan fund og segist furða sig á þeirri leynd sem umlykur frumvarpið. „Ég skil ekki hvers vegna ekki er hægt að kynna þetta fyrir almenningi; ríkisstjórnin segist ætla að kynna þetta fyrir okkur á lokuðum fundi og lekur síðan því sem hentar til fjölmiðla.“ Friðrik segir að sér lítist illa á það sem hann hefur fregnað af frumvarpinu. „Það er alveg ljóst að það er ekki verið að efla þessa atvinnugrein, heldur er verið að veikja íslenskt samfélag. Allt það sem ég hef heyrt af þessu frumvarpi er slæmt.“

Hann segir að aðilar sjávarútvegsins hafi lítinn þátt átt í þessum breytingum á fiskveiðistjórnun landsins. „Þar sem við erum samningsaðilinn, höfum við farið þess á leit, allt frá því að sáttanefndin lauk störfum fyrir átta mánuðum, að fá að taka þátt í þessu ferli. Við höfðum ekki ímyndunarafl til að sjá fyrir, að við fengjum ekki að eiga aðild að þessu frumvarpi.“

Þá fullyrðir blaðið að veiðigjald hækki um 70 prósent, en það hefur ekki enn fengist staðfest. Fréttablaðið nefnir 50 prósenta hækkun á veiðigjaldi, en  , byggðakvóti verður aukinn, varanlegt framsal verður leyft í 15 ár og úthlutun á aflaheimildum verður breytt í nýtingarheimildir. Þetta er meðal þess sem felst í kvótafrumvörpunum tveimur, sem lögð voru fram af Jóni Bjarnasyni sjávarútvegsráðherra og afgreidd úr ríkisstjórn í gærmorgun.

Nefnd, sem á að leggja mat á hagræn áhrif frumvarpsins, fékk það afhent í gær og mun líklega ljúka störfum í júní.

“Okkur er ætlað að skoða áhrifin út frá þeim þáttum og breytingum sem frumvarpið lýtur að,” segir Axel Hall hagfræðingur, formaður nefndarinnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is