Viðskipti Fimmtudagur 12.05.2011 - 10:32 - Ummæli ()

Bang & Olufsen á öðru hverju heimili. Hvergi selt meira en hérlendis fyrir hrun

Þó vart fengist dýrari raftæki en frá B&O keyptu engir nema Rússar fleiri slík tæki fyrir hrun

Hvað hreinan fjölda tækja varðar keyptu aðeins Rússar fleiri raftæki af hinu þekkta og dýra fyrirtæki Bang & Olufsen en Íslendingar á árunum fyrir hrun. Miðað við hina frægu höfðatölu eiga Íslendingar þó heimsmetið í kaupum á slíkum vörum.

Segir DV frá þessu heimsmeti Íslendinga en móðurfélag B&O var í íslenskri eigu en það félag hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta þrátt fyrir þessa miklu sölu.

Vandfundin eru mikið dýrari raftæki en frá þessu virta danska fyrirtæki en það virðist ekki hafa aftrað Íslendingum frá kaupunum á árunum fyrir hrun en í kjölfar hrunsins gekk ekki betur en svo að sérverslun B&O hérlendis hefur nú verið lokað.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is