Laugardagur 14.05.2011 - 09:30 - Ummæli ()

Smærri fyrirtæki skuldum vafin. 1500 fyrirtæki stefna í gjaldþrot

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, greindi Alþingi frá skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Sex þúsund lítil og meðalstór fyrirtæki skulda 10 til 1.000 milljónir króna. Þar af stefnir fjórðungur þeirra, eða 1.500 fyrirtæki, í gjaldþrot.

Rúmlega 500 fyrirtæki eru enn í skoðun vegna skuldaúrvinnslu. Þetta kom fram í máli Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, í umræðum á Alþingi um stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja.

Fréttablaðið vitnar í nýlegt yfirlit frá fjórum stærstu bönkunum segir segir að sex þúsund lítil og meðalstór fyrirtæki eru með skuldir á bilinu 10 til 1.000 milljónir króna. Þetta eru viðmiðin sem verkefnið Beina brautin, sem er fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja, nær til. Fari 1.500 fyrirtæki í þrot er um fjórðung þessara fyrirtækja að ræða.

Tæplega tvö þúsund fyrirtækjanna eru ekki í greiðsluvanda, að því er efnahags- og viðskiptaráðherra greindi frá. „Fyrirtæki í skuldagreiðsluvanda eru talin um fjögur þúsund. Þar af er gert ráð fyrir að vandi um eitt þúsund fyrirtækja leysist með Beinu brautinni, um 670 til viðbótar fái úrlausn með lengingu í lánum og 280 þar til viðbótar fái úrlausn með 25 prósenta lækkun á höfuðstól.“

Einar K. Guðfinnsson, sem hóf umræðuna á þingi, segir menn sammála um að atvinnusköpunin sé hlutfallslega mest hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. „Þeim mun alvarlegra er það að 1.500 þeirra stefni í þrot. Ég held að menn verði að skoða þessa hluti alveg upp á nýtt.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is