Sunnudagur 15.05.2011 - 15:06
- Ummæli
()
1. Ef þú ert úti að borða og hellir síðustu dropunum í glas sessunautar þíns þá þýðir það að hann þarf að borga næstu flösku. Þess vegna þykir huggulegra að hella síðustu dropunum í eigið glas.
Ýmislegt sem vert er að hafa í huga ef ferðast er til Aserbadjan:
1. Ef þú ert úti að borða og hellir síðustu dropunum í glas sessunautar þíns þá þýðir það að hann þarf að borga næstu flösku. Þess vegna þykir huggulegra að hella síðustu dropunum í eigið glas.2. Reyndu eins og þú lifandi getur að komast í brúðkaup. Þau eru víst ógleymanleg.
3. Símanúmer lögreglu er 102, slökkviliðið er 101, gasvesen er 104 og sjúkrabíll er 103. En mundu eitt: Þú þarft að kunna eitthvað fyrir þér í tungumáli Aserbadjan, asersku, tyrknesku eða rússnesku ef þú vilt gera þig skiljanlega(n) við heimamenn.
4. Ef þér er boðið í heimsókn skaltu færa gestgjafanum gjöf. Ef þú færir honum blóm hafðu þau í oddatölu, slétt tala táknar jarðarfarir. Mundu líka að fara úr skónum. Og það jafnvel áður en þú stígur fæti inn í húsið. Þótt gestgjafinn hvetji þig til að vera í skónum skaltu ekki þiggja það. Ekki undir neinum kringumstæðum.
5. Annað sem vert er að hafa í huga ef þú vilt vera vönduð/vandaður:
- Settu lappirnar aldrei upp ef þú situr og ekki sýna iljarnar.
- Ekki benda á neinn.
- Ekki tyggja tyggjó á meðan þú talar við einhvern.
- Ekki snerta neinn án þess að biðja um leyfi.
- Ekki knúsa eða klappa einhverjum á bakið sem þú þekkir ekki vel.
- Ekki blóta.
- Ekki hækka róminn eða öskra, sérstaklega í almenningssamgöngum.
- Berðu virðingu fyrir gömlu fólki og konum.
Það er nokkuð ljóst að 90% af íslensku þjóðinni þyrfti að fara í félagslega og siðferðislega yfirhalningu til að teljast vönduð í Aserbadjan. Djók (en samt ekki djók).