Már Guðmundsson: Kreppan grynnri hefði Ísland verið aðili að evrusvæðinu

Seðlabankastjóri efast ekki um að kreppan hefði orðið grynnri hér með aðild að evrusvæðinu
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, fullyrti á fundi með bankamönnum í London fyrir helgi að kreppan hérlendis hefði orðið grynnri hefði Ísland verið aðili að evrusvæðinu. Það hefði líka komið í veg fyrir gjaldeyriskreppu þá sem Íslendingar glíma nú við.
Birtust í dag ræður þær er Már hélt í London fyrir þarlenda bankamenn og bankastjóra um íslenska hrunið og afleiðingar þess. Í sömu för átti Már viðtal við seðlabankastjóra Englands, Mervyn King,
Tiltók Már sérstaklega að herða þyrfti á bankalöggjöf innan Evrópusambandsins og á evrópska efnahagssvæðinu. Reglurnar nú væru meingallaðar og í raun hættulegar fyrir litlar þjóðir á borð við Íslands sem stæði utan ESB. Tryggja þurfi að Evrópusambandið samræmi reglur sínar og bæti og fari með yfirumsjón með eftirliti, tryggingum og ekki síst viðbragsáætlunum ef í harðbakka slægi.
Glærur úr ræðu Más hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is